Saturday, February 25, 2012
Saturday, January 21, 2012
Og bloggari ársins er.........
Jeremías minn hvað ég er svakalega dugleg að henda inn færslum :o(
En ég hef þó ekki setið auðum höndum því ég er búin að vera að framleiða peysur, hjörtu,og þessa hér:
| Þessi hér fyrir ofan er í stærð 50x50 cm |
| Þessi er í stærð 40x40 cm |
| Þessi er 50x50 cm líka |
| Það vantar fyllingu í þennan greyið hann er dálíð þunnur en er í stærð 40x40 |
| Þessi er ekki alveg tilbúinn en hann verður í stærð 40x40 |
| Þessi er líka 40x40. |
Já þetta er bara brot af því sem að ég hef verið að "bardúsa" .
Svo er ætlunnin að koma þessum í sölu á næstunni :o)
Vonandi líst ykkur vel á og endilega sendið mér línu hér og segið mér hvað ykkur finnst.
Ást og friður
Ásthildur skessuskott.
Wednesday, January 11, 2012
Jæja nýtt ár og ný tækifæri .......
Jæja þá er nýtt ár tekið við,
með nýjum tækifærum og nýrri byrjun.
Þetta ár verður hlaðið breytingum !!
Mörg verkefni bíða mín og fullt af hugmyndum eru að fæðast,
t.d sem að innihalda þessar hér:
Svo set ég inn myndir um helgina af verkunum fullkláruðum :o)
Ég vona að nýja árið færi ykkur fullt af hamingju og gleði,
Kæra kveðja
Ásthildur.
Monday, December 26, 2011
Tuesday, December 6, 2011
Well well it has been a long time.....
Er ég ekki farin að skrifa þessi orð all oft??
Jæja en ég hef nú ekki setið auðum höndum þrátt fyrir bloggleysi, ég er ef ég má segja sjálf frá að mastera tæknina við að prenta á tau í prentaranum mínum :o)
Sko er þetta ekki fínt??
| Hér er ég svo búin að sauma hjörtu úr efninu fína :o) |
| Þetta hjarta stenslaði ég svo á , hér er önnur hliðin og hin hliðin er á myndinni fyrir neðan.... |
| Svo er smá bakka-föndur svona í lokin .. |
Jæja gott fólk, ég ætla að fara að fleygja mér í bælið,
Farið varlega kæru vinir
Yfir og út
Bóthildur skessuskott.....
Saturday, November 19, 2011
Langt um liðið .........
Jæja það er orðið frekar langt frá síðustu færslu, en nú verður bætt úr því :o)
Við litla fjölskyldan erum búin að vera á ferð um landið og nú er kominn tími til að hella sér af öllum krafti í jólaundirbúninginn !!
Í dag bökuðum við piparkökur við mikinn fögnuð litlu mannana á bænum .
Feðgarnir slóust nánast um að borða deigið, en litli maðurinn hafði yfirhöndina að lokum :o)
| Við fengum láns barn til að hjálpa okkur í dag og hann stóð sig eins og fagmaður !! |
Aðeins að smakka á brjóstsykrinum ...
Hann stanst prófið og fær þetta kanínutanna bros að launum :o)
Litli lungnabólgu sjúklingurinn og pabbinn að fíflast eins og þeirra er von og vísa ....
hluti af afrekstrinum
Frumburðurinn bíður þolinmóður á meðan litlinn sker út...
Jólasveina-tríó
Aðventukransinn bíður þess að vera tendraður um næstu helgi ...
En þar til næst
Ást og friður
Ásthildur....
Friday, November 4, 2011
Ein ég sit og sauma .......
Hér á bæ er jólafiðringurinn illilega farinn að segja til sín,
í kvöld dreif ég mig í að klára 2 jólagjafir og nú bíða þær innpökkunar,
Þá er komið að montstundinni hehe
Þessa vængi er ég búin að gera fyrir 3 englaskott og þessar húfur eru fyrir 3 aðeins stærri englaskott :o)
hömm hömm miðana setti ég yfir til þess að ekki uppgötvist hver á að fá þessa vængi, en ég stenslaði skammstafanir á vængina :o)
einn vængur er nú þegar tilbúinn og innpakkaður....
Svarta húfan er prjónuð ú Alfa Glitter og er ég bara nokkuð ánægð með útkomuna.
Þá er kominn tími á mig að svífa inn í draumalandið,
Góða nótt kæru vinir og njótið helgarinnar..
Kv Ásthildur Skessuskott.
Subscribe to:
Posts (Atom)




