Tuesday, August 30, 2011

MMMM haustilmur í lofti .....


 Jæja þá er runnin upp ein af mínum uppáhalds árstíðum, árstíð kertaljósa og kúrs, uppskeru og sulltugerðar, haustið er komið ......
Þetta er tími sem að ég elska að elska.
Á þessum tíma styttist óðar í besta tíma ársins Jólanna, já já ég bara get ekki annað en hrifist af þessari dásamlegu hátíð ljóss og friðar og gleði og glaums....

En þar til ætla ég svo sannarlega að njóta daganna sem að fram undan eru og sulta og baka og dúlla mér við skreytingar og föndur :o) Ég mun dæla á ykkur myndum af þessu öllu sem og uppskeru sumarsins :o)



Njótið haustsins kæru vinir, kveikið á kertum og njótið augnabliksins..      


Knús og kram Ásthildur

1 comment:

  1. Ha ha ég er svo sammála þér, er algjör haustmanneskja og fæ einhvern fiðring þegar ég finn haustlyktina, litina koma og vindinn blása..elska haustið og að ganga hér í Danmörku í skóginum þegar laufin eru að detta af trjánum :) love it..getur þetta verið algengt hjá sporðdrekum ?? Kv.Harpa Hall

    ReplyDelete

Það er ekkert mál að commenta og velja svo "anonymous" í listanum :o)