Monday, June 4, 2012

Norge......

Núna seinustu helgina í Mai skellti ég mér í mjög svo óvænta ferð til Noregs að hitta eiginmannin sem var þar í 2vikna námi tengt starfi sínu. Ákveðið var að ég færi á miðvikudegi kl 18:30 og ég fór í flug á fimmtudegi kl 8:00..... Ekki alveg minn stíll að gera eitthvað svona spontant  en varð þó til þess að vvíkka hjá mér sjóndeildarhringinn og varð þessi ferð í alla staði ógleymanleg og dásamleg :o)
En ég verð nú að segja að ég heillaðist algjörlega upp úr skónum af Noregi, þvílík fegurð !!!!
Ég sem sagt var í Þrándheimi hehe

Niðarós dómkirkjan í öllu sínu veldi, þvílík bygging!!!!




Um það bil 85% mynda sem að ég tók var af húsum hehe kanski ég ætti að róa mig aðeins? en það eru bara svo svakalega falleg hús þarna.......

'eg mundi nú ekki segja NEI við einu svona !!

Eigum við að ræða þetta eitthvað?? Ég er viss um að ég og þetta hús myndum smella saman eins og flís við rass og færum hvort öðru ákaflega vel hehe..

Hérna erum við í gamla bænum sem var svo magnaður, stemmningin, húsin og tilfinningin þarna var frábær, ég varð algjörlega afslöppuð og bóhem fílingurinn vall upp í mér, þar sem að ég er svolítilll hippi í mér þá fann ég mig algjörlega þarna innan um lítl og falleg kaffihús og endalaust af litlum galleríum og saumastofum.... Dásemdin ein


Þessi mynd er tekin rétt við hótelið okkar og eru allar byggingarnar byggðar ofan í ána, frekar flott og tjörulyktinn varð einhverra hluta vegna ekkert svakalega slæm, hún jaðraði við að vera bara fín ..

Ég náði ekki að snúa þessari en þetta trjáhýsi fannst mér frekar mikil snilld, ég veit að synir mínir 2 yrðu ekki leiðir yfir að eiga einn svona.... Þetta yrði svolítill "Emil í Kattholti" fílingur þar sem mamman á heimilinu er skelfilega lofthrædd þá yrði allavegana yngri guttinn oftast þarna uppi myndi ég halda hehehe"KOMDU HÉRNA NIÐUR OG TALAÐU VIÐ MIG BARN " .....

Ég hitti dásamlegu æðislegu frábæru frænku mína hana Indu sætu úti þar sem að hún er í skóla Í Þrándheimi, hún tók okkur með sér upp að vatni sem er nokkuð út fyrir borgina og eiddum við deginum með henni og frábærum vinkonum hennar tveim þar og mikið var þetta DÁSAMLEGT!!

Fallega fallega frænkan mín, endalausar þakkir til þín frá okkur hjónum, og mikið svakalega var gaman að fá að eiða tímanum með þér!!!!!

Gamli bærinn 

Yfirlit yfir Þrándheim, DÁSAMLEGT !!!!

Tuesday, April 24, 2012

MMMM ferðalög í sumri og sól.......

Þessa dagana langar mig óskaplega að ferðast til annara landa, einhverra landa sem ég hef ekki komið til áður, (ekki það að ég hafi heimsótt þau mörg ) En það er til svo svakalega mikið af fallegum stöðum í heiminum og svo margir sem væri svo vert að skoða, ég fann hér myndir af nokkrum stöðum sem ég myndi ekki mótmæla að kíkja til:
Þessi staður heitir Benteng og er á Indlandi, þvílík fegurð og ég get rétt ímyndað mér að útsýnið sé ekki af verra taginu !

hér gæti ég gleymt mér við að snorkla, liggja í sólbaði og drekka ískalda og suðræna kokteila      
Þetta eru four season hótelin á Borabora
Plitvice vatnið í Króatíu 

Crystalline Turquoise vatnið í Kína

Dalur hinna tíu toppa Kanada

Bláu hellarnir Grikklandi

Petra Jórdaníu 

Riomaggiore Ítslíu....

Þennan stað hefur mig SVOOOO lengi langað til að heimsækja en þetta er hið margrómaða Toscanahérað á Ítalíu

Þvílík fegurð!! Verdon Provence Frakklandi...
Ójá þar sem að ég sé ekki fram á að ég muni fara út fyrir landsteinana þetta árið get ég þó alltaf komið hér inn og látið mig dreyma alla þessa fallegu staði,
En annars er það að frétta að það hefur hreiðrað um sig lítill bumbubúi og erum við að verða hálfnuð með meðgönguna,(það er skýringin á meðvitundarleysi mömmunar í bloggmálum hehe) mamman er í skýjunum sem og allir á heimilinu.
En þar til næst ást og friður 
Ásthildur Skessuskott.

Sunday, March 11, 2012

Kransagerð

Jæja þá er ég að detta í gírinn aftur eftir frekar langa leti !!
En ég sá svona krans á Hugmyndir fyrir heimilið og féll fyrir honum með denn samme hehe
Og réðist í gerð hanns, ef að ég hefði vitað fyrir hversu seinleg þessi vinna er hefði ég án efa geymt þetta, en nú þegar hann er tilbúinn þá gæti ég ekki verið hamingjusamari......
Svona urðu rósirnar til

Allt að gerast og komnar perlur í kvikindin hehe

aumingjans byko bæklingurinn fékk að finna fyrir límbyssuni

Svo er hann tilbúinn rómantískur og sætur  finnst ykkur það ekki??
Núfer ég að detta i föndrið af öllum kröftum og er strax komin með fullt af verkefnum :o)
En þar til næst hafið það gott og njótið lífsins, það ætla ég að gera ....
Ásthildur Skessukott .

Sunday, March 4, 2012

Oh how time flyes.......


Í dag er komin 12 ár frá því að ég skartaði þessu:
Þarna var ég að verða 22 :o)
Krúttlegasti eiginmaðurinn, (hann verður ekki glaður með krútt-nafnið!!)
Svona erum við svo í dag 12 árum síðar..

Svo krúttleg þessi 

Og gleðin geislar af þeim já eða ekki 

Svo fallegur !!

Beautyful!!

L'amor

Stórfjölskyldan saman komin á þessum hamingjuríka degi, eða er ég að misskilja eitthvað??  
Þessi dagur fyrir 12 árum var okkur hjónum mjög svo heillaríkur og gleðilegur, 
ég vona að lífið gefi okkur önnur 12 í viðbót og mörg fleiri en það !!
Silkibrúðkaups-afmæliskveðjur
Ásthildur skessuskott...

Saturday, February 25, 2012

Morgunkaffi í rólegheitum

Ég vaknaði á undan öllum í morgun og náði rólegri stund með kaffibolla, kertaljósum , rúnstykki og Ísfólkinu...
getur maður byrjað daginn betur ??

Nýju fínu bollarnir sem að ég var að fá mér

Nýjasta föndrið 

Eru þau ekki bara fín??



Ást og friður á ykkur 
Ásthildur Skessuskott

Saturday, January 21, 2012

Og bloggari ársins er.........

Jeremías minn hvað ég er svakalega dugleg að henda inn færslum :o(
En ég hef þó ekki setið auðum höndum því ég er búin að vera að framleiða peysur, hjörtu,og þessa hér:
Þessi hér fyrir ofan er í stærð 50x50 cm
 
Þessi er í stærð 40x40 cm

Þessi er  50x50 cm líka

Það vantar fyllingu í þennan greyið hann er dálíð þunnur en er í stærð 40x40

Þessi er ekki alveg tilbúinn en hann verður í stærð 40x40

Þessi er líka 40x40.   
Já þetta er bara brot af því sem að ég hef verið að "bardúsa" .
Svo er ætlunnin að koma þessum í sölu á næstunni :o)
Vonandi líst ykkur vel á og endilega sendið mér línu hér og segið mér hvað ykkur finnst.
Ást og friður 
Ásthildur skessuskott.

Wednesday, January 11, 2012

Jæja nýtt ár og ný tækifæri .......

Jæja þá er nýtt ár tekið við,
með nýjum tækifærum og nýrri byrjun.
Þetta ár verður hlaðið breytingum !!
Mörg verkefni bíða mín og fullt af hugmyndum eru að fæðast, 
t.d sem að innihalda þessar hér:




Svo set ég inn myndir um helgina af verkunum fullkláruðum :o)
Ég vona að nýja árið færi ykkur fullt af hamingju og gleði,
Kæra kveðja 
Ásthildur.