Friday, January 18, 2013

Drauma drauma!!!!

Á einni af fjölmörgum ferðum mínum um fagur-bloggin rakst ég af algjörri slysni á heimili sem að ég algjörlega gjörsamlega kol féll fyrir, þvílík fegurð á einu heimili!!!
Það er held ég ekkert á þessu heimili sem að mér finnst ekki fallegt, Jesús Pétur María jósep og allir hinir!!
Þetta guðdómlega heimili er í Svíþjóð, (ég þurfti að googla hahaha) Ég gaf mér ekki tíma til þess að lesa allt um þessa dásamlegu og yfirmáta smekklegu konu sem heldur úti þessu bloggi vegna yfirgengilegrar löngunar til að deila þessum dásemdum með ykkur 
ahhhh sjæsen hvað ég elskidda en hér er linkurinn á síðuna, en ég ætla að láta myndirnar tala sínu máli og fara að halda kj ;) hehe
 Eruð þið að sjá gluggasætin??
 Gluggarnir manneskja gluggarnir!!
 húsin manneskja HÚSIN!!!!!!
 Ég væri til í að skarta þessari kórónu á hverjum degi ;)
Smá jóló ég veit en Guðmundur minn.....

Hér væri ég til í að kúra ALLA DAGA .
Eruð þið jafn dolfallin og ég??
En þar til næst 
Skessuskott sem þarf áfallahjálp eftir þetta allt, 
(ég er ekki að grínast ég er með hjartslátt og læti!!)
Hafið þið lent í að "fegura" yfir ykkur ??
Ást og friður ...

4 comments:

  1. Já þetta er dásamlegt... Ég gæti alveg hugsað mér að búa þarna, flitja bara inn strax í dag og málið dautt..
    kv Ása

    ReplyDelete
  2. Absolutely beautiful, I love all:-)))

    ReplyDelete
  3. haha vá hvað ég kannast við hjartsláttinn og allt það þegar ég uppgötva algjöra heimilisparadís go fegurðin bara flæðir um allann skjáin, hélt ég væri bara ein um þetta. Þetta er gjörsamlega gordjöss heimili, takk fyrir að deila með okkur, hafði ekki séð þetta áður... og á sko eftir að klikka á linkinn og skoða meira ;) Vissi að það væri betra að kvitta fyrst
    kær kveðja
    Stína (sem fegurar allt of oft yfir sig á netinu)

    ReplyDelete

Það er ekkert mál að commenta og velja svo "anonymous" í listanum :o)