Friday, July 13, 2012

Stundum, bara stundum.......

Stundum, bara stundum (en samt eiginlega alltaf) vildi ég óska þess að ég hefði stórt þvottahús með fallegum stórum skápum þar sem að hægt væri að hafa föt allra fjölskyldumeðlima, ekkert mál að ganga frá og ekki mikið vesen að fara með skítug föt í þvottakörfuna hóst, hóst.....
Þetta þvottahús (sem ég fann með hjálp Google) finnst mér alveg snilld...
 Ekki það að ég væri hrifnari af því að hafa innréttinguna alveg hvíta og stílinn pínu shabby :o)
Þessar óhreinataus körfur finnst mér alveg frábærar og meira að mínum stíl..
 Þessar grindur eru algjör SNILLD að mínu mati og algjörlega minn stíll og sá stíll sem að ég mundi vilja hafa í þvottahúsinu.
Sko algjörlega ég :o)
Nú er ímyndunar aflið komið á fleigi ferð og ef að ég væri ekki með risa kúlu framan á mér myndi ég ráðast í meiriháttar framkvæmdir !!!
En ég get huggað mig við að ég er að fara í árs fæðingarorlof og trúðu mér það verður tekið til hendinni hahahaha
En þar til næst læt ég mig dreyma áfram ...
Eigið ljúfa drauma kæru vinir,
ykkar Ásthildur skessuskott

1 comment:

  1. Voða ertu myndarleg í þér Hilda mín. Allt voða flott og fínt hjá þér. Bið að heilsa þér og þínum kveðja að norðan Erla Ösp fyrrum Teigasels skvísa.

    ReplyDelete

Það er ekkert mál að commenta og velja svo "anonymous" í listanum :o)