Wednesday, May 8, 2013

Sætukoppar...

Á Sunnudaginn fékk ég heimsókn frá dásamlegum og fallegum mæðgum, og ég gat ekki staðist mátið og reif upp myndavélina og prufaði mig áfram á henni, ég er bara nokkuð sátt með útkomuna (kanski ekki annað hægt þegar maður hefur svona fallegar stelpur sem myndefni) Svo að sjálfsögðu voru börnin mín mynduð, þeas þessi yngri 2 unglingurinn var  sko ekki til í myndatöku !!!
Litla Elísa 7 og 1/2 mánaða prinsessa 

Davíð Aron og Elísa Ósk 

6 ára afmælisprins 

Fanney Ýr og Camilla Ýr krúttbomba

Fallegar mæðgur 

11 mánaða prinsessa


Þessi augu gjörsamlega bræða mann!!!


Fallegu mæðgurnar Ísabella Ýr, Fanney Ýr og Camilla Ýr

Fallegu börnin 







Elísa Ósk krúttbomba


Vinkonurnar


Hvernig fannst ykkur, eru þetta ekki bara alveg ágætar myndir??
Þær eru alveg óunnar (af því ég kann ekkert svoleiðis) 

En þar til næst hafið það gott í veðurblíðunni 
Ásthildur skessuskott

Monday, April 22, 2013

HÆG ERU HEIMATÖKIN ....

Já það er hverju orði sannara, en hér á Skgatá er starfrækt listmuna og handverks galleríið Urmull sem selur handverk og listmuni eftir heimafólk.
Úrvalið er frábært og þar er hægt að fá ja bara allt á milli himins og jarðar, þar má t.d nefna fatnað frá henni Guðmundu í TdP (Topide Pelo) en hún er fatahönnuður og er hún td með frábærar brjóstgjafa-kjóla-peysur, kjóla og leggingsbuxur svo eitthvað sé nefnt, þar fást einnig, gestabækur, ullarpeysur, leirmunir skart útsaumsvörur og dúkar og svo margt margt fleira...
 Þessi púði finnst mér ferlega kósí og blómavasarnir einu númeri of krúttlegir.
 mmm.. hreindýr



 Svo flottir bollar (segir bollasjúka konan í mér ;)
 Akraneskirkja

 Þessir eru nú tilvaldir í sængur eða skírnargjafir 
 Guð hann er svo fallegur þessi!!!!
 Pokaljós og kerta-geimslu-pokar eftir yours truly
 Þessar myndir finnast mér alveg svakalega fallegar, þessi til hægri skaut sér inn á óskalistan minn :)
 Jedúdda mía mér finnst hann sjúklega fallegur og ósvvooo mjúkur!!!!


 Dásamlegt á litlu krílin 
 Svakalega falleg þessi 
 engum vill vera kallt á puttunum
 Þessar bækur finnast mér sjúklega flottar,




 Þessi peysa ÆTLAR sér að verða mín!!!



 Og svo enn meira fyrir bollaóðukonuna,en þessar mjólkurkönnur finnast mér ÆÐI!!

Þessi hérna er líka algjört æði

Svo fallegt armband....

uuuuuu já takkkkk

Svakalega flott þetta 

 Flott tækifæriskort

 Hamingjubox
 By yours truely
 Handofnir dúkar...
 Me meeee svo krúttað
 Svo falleg þessi 

 Falleg verslun í alfaraleið :)
Nú hvet ég alla sem leggja leið sína á Akranesið fagra að kíkja við í þessu fallega og frábæra galleríi...
En þar til næst 
Ást og friður 
Ásthildur Skessuskott